Jólabréfið.
Og þar kom að því. Árið sem jólakortin voru ekki prentuð.
Forgangsröðunin
þessi jólin setti geðheilsu í fyrsta sæti og því varð þetta niðurstaðan:
Rafrænt verrýmerrýkristmastújú í ár til ykkar. Og viti menn, kannski kemur prentaða útgáfan næsta ár! (lesist: ekki taka okkur af jólakortalistanum, við lofum bót og betrun!)
Rafrænt verrýmerrýkristmastújú í ár til ykkar. Og viti menn, kannski kemur prentaða útgáfan næsta ár! (lesist: ekki taka okkur af jólakortalistanum, við lofum bót og betrun!)
Hef
samt ákveðið af einskærri sjálfselsku að skrifa smá pistil um afrek
fjölskyldumeðlima í ár. Það er af nógu af taka, sér í lagi ef maður
telur með hrakfallaafrek og vandræðaleg samfélagsmiðlunarafrek einstakra
fjölskyldumeðlima. Þetta virkar líka ágætlega eins og dagbók fyrir
gleymnu húsmóðurina sem man ekki á milli daga, hvað þá ára.
Af
Drekanum (hundinum sko) er það að frétta að hann er jafn latur og í fyrra,
aðeins minna feitur en með jafnvalkvæða heyrn. Hann hefur líka þróað með
sér hjartaveiki sem hann notar til að réttlæta letina og virðist ekki
skilja að virkunin gæti verið jákvæð í hina áttina. Hann er samt
óttalegt krútt og hefur náð að bræða flesta þá sem hann hittir. Nema
kannski ekki nágrannakonuna til vinstri. Hún hatar hann eins og pestina.
Rebekka
er eins og flestir vita snillingur á marga vegu. Hún er góð og gjafmild
og mikill vinur vina sinna. Hún er líka þver eins og (..ekki hugsa
”móðirin”..plís!) naut í flagi þegar þannig liggur á henni og hefur
mikla réttlætiskennd sem kemur henni oft í klandur. Hún hefur meðal
annars afrekað það hafa fengið regnhlíf í augað, verið hrint niður
tröppur (og mætt heim í rifnum buxum í kjölfarið) og fengið sand og lús í
hárið. Bara sirka svona eins og það á að vera þegar maður er með rautt
hár, freknur og átta ára. Heilsan hefur líka lagast hjá henni, en hún
hefur eytt síðustu 6 árum hér í Lúxemborg með því æla og spúa eins og
múkki á vel völdum augnablikum (yfir matarborð, yfir rúm, á veggi, á
gólf, í bíl, í verslunum.. sjaldnast í klósett eða fötur... viljiði að
ég haldi áfram?). Eftir nokkrar tilraunir í samvinnu við lækna hefur
verið ákveðið að laktósi sé hennar óvinur og því er honum núna sleppt.
Og viti menn.. ælusplatterinn er í fríi!
Gabríela
– korter-í-unglinginn hefur færst upp á næsta skólastig hér í Lúxemborg. Hún er nú komin í Lycée og
glímir þar við frönsku, þýsku, stærðfræði, unglingabólur, landafræði og
önnur þau vandamál sem hrella 12 ára unglinga í hinum vestræna heimi.
Hún er svo óendanlega dugleg að læra að við veltum því gjarnan fyrir
okkur hvort hún hafi verið ættleidd og við bara gleymt því. Foreldrarnir
kannast allavega ekki við slíka elju þegar fortíðin er rifjuð upp, en klöppum okkur sífellt á öxlina og brosum hógvært út í annað þegar henni er hrósað. Allt eins og þetta sé okkur að þakka. Hún
æfir tennis og fótbolta (eins og systirin) og er að umþaðbil að tvöfalda matarreikninginn á
heimilinu, sér í lagi þegar það er soðinn fiskur í matinn. Ótrúlegt
hvað krakkinn getur étið.
Karlinn
er ennþá að heiman. Svona oftast. Kemur samt auðvitað heim á helgum og
þegar tilefni er til. Sem minnir mig á það. Hann hljóp í liða-maraþoni í
Lúxemborg í vor. Hinir í liðinu voru ykkar einlæg, bróðir minn hann
Kristinn og Begga mágkona. Ótrúlega gaman og allir náðu að klára sinn
legg. Sem er frábært.. nú hlýtur hann að stefna á hálfmaraþon næst.. ha?
Er það ekki ...? Kiddi...?? Lítið um golf í ár, þó eitthvað en meira
af ferðalögum. Hann elskar t.d. að keyra um Evrópu með konuna sína,
aftursætis-frammísætis- viðhliðinaásætis-bílstjóra- dauðans, sér
við hlið (eða ekki) og lagði það á sig að keyra til Ítalíu í sumar þar
sem við eyddum dásamlegri viku með góðum vinum.
Og
nú hugsar þú, fer þessu bréfi ekki í alvöru að ljúka. Jú, það væri bara
fínt. Þá þarf náttúrulega ekki að telja upp afrek frúarinnar sem felast
helst í því, eins og svo oft áður, að halda titlinum ”móðir ársins” á lofti. Ég
vil bara að þið vitið það að þó að maður gleymi foreldrafundum, fái
lánaðan pening úr veskjum barna sinna (og gleymi að borga tilbaka) og borði nammið þeirra á kvöldin (já, þetta íslenska) gerir það mann ekki
að vondri manneskju. Bara alls ekki. Hver á
gallalausa foreldra, ég bara spyr? Jesú? Af öðrum afrekum má nefna að
nýr vinnustaður tók við greyinu og þar er hún enn. Barasta alveg eins
og þegar hún byrjaði í mars (helv..-linkedin-helv..- uppfærslu-helv..-ævintýralega- klúður).
Kvöddum
síðan í desember hana Sigrúnu sem hefur þjáðst með fjölskyldunni í
skipulags-óreyðunni í ár. Hún er æði. Hún söng endalaust og gaf
mikla hlýju til barnanna okkar. Fyrir það erum við þakklát. Og líka
það að eiga hana að vini um ókomna framtíð.
Við
látum þetta duga að sinni. Vona að þið hafið ekki sofnað. Í lokin, mynd
af okkur sem kristallar ástæðuna fyrir því að það er ekkert vit í því
að láta fagfólk taka mynd af okkur. Fjarstýring og málið er dautt. Hvað er flókið við þetta?
Jólarafrænt-knús
frá Lúx.. (og svo þið sem viljið alvöru knús þá verðum við á klakanum
frá 26.desember til 5.janúar 2014). Áhugasömum bent á að panta tíma.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli