Sumarið búið, eins og það hafi nokkurn tíman komið. Það passar því að það líði eitt sumar á milli bloggskrifa, næstum eins og ekkert hafi liðið á milli..
Skítakuldi í vesturbænum og norðanáttin blæs.. og blæs.. og blæs vonandi ekki húsinu okkar um koll! Af Nýlendugötunni er allt gott að frétta, erum enn að leita að au-pair, ótrúlegt en satt. Við erum greinilega með svokallað negatíft aðdráttarafl þar sem okkur virðist takast að hrekja væntanleg au-pair í skóla, til annarra fjölskyldna og jafnvel annarra heimsálfa.. Þær bara vilja ekki koma til okkar! Samt reynum við hvað við getum til að lokka þær að og laða! (ég ætti þó kannski að taka nektarmyndirnar af Kristjáni af au-pair síðunni.. hmm...)
Höfum þessvegna ákveðið að ættleiða tvo litla drengi sem hvort eð er búa hjá okkur og eru þrælar okkar eins og stendur. Já.. Sigurþór og Roald héldu að sælan ein myndi bíða þeirra eftir brúðkaupið sitt, en annað kom á daginn. Þrælahald í kjallaranum og rétt svo slaki á keðjunni til að þeir nái í uppvaskið og eldavélina! Grettisgatan er sumsé "still under construction".. Tók eftir því áðan að Sissó reyndi allt til að ná símanúmerinu hjá verktakanum sem sér um aðgerðir í "Extreme makeover: Home Edition" en þeir settu alltaf einhvern texta yfir! Get samt ekki kvartað, bara gleði að hafa þá félaga hjá okkur, eldað og allt!
Veit svo sem ekki hvað er meira markvert í fréttum, fyrir utan það að þvottavélin gaf upp öndina áðan (sem er algjörlega Kristjáni að kenna, hann bara neitar að viðurkenna það, en hann stöffar hana svo að hún gat bara ekki meir) sem er ekki gott fyrir 6 manna fjölskyldu. Fer í það á morgun að fá annaðhvort læknismeðferð eða dánarvottorð!
ójú! Kristján er byrjaður á garðinum! Ætlar að smella sér í pallavinnu! Það verður frábært, enda lýstu nágrannarnir því yfir um daginn að líklega gætum við unnið verðlaun fyrir ljótasta garðinn í götunni. Held að þau þjáist að búa við hliðina á okkur!
Stelpurnar hressar, ...og nei, Rebekka er hvorki komin með tennur, hár né farin að ganga (og veldur þetta miklum áhyggjum hjá þeirri eldri, sem ber hana saman við systur Sylvíu, Henríettu, sem er 4 dögum eldri en Rebekka..).. og er það bara fínt. Þá þarf ég alla vega ekki að hafa áhyggjur af henni í stiganum strax!
Er annars að byrja í skólanum í næstu viku þannig að gleðiveturinn mikli er handan við hornið... er að bíða eftir einkunnum úr haustprófunum (prófin sem ég sleppti að taka í desember), en það er auðvitað skiljanlegt að það taki menn 3 vikur að fara yfir próf hjá 6 nemendum. REALLY!!
Jæja, nóg í bili, höndla ekki of bráða byrjun! Allt er gott í hófi fólk!
Þar til næst,
slauga
29. ágúst 2006
31. maí 2006
Að velja óperu..
Jæja.
Konan er uppgefin. Er byrjuð að vinna aftur og hef aftur hlotið titilinn skemmtilegasta eiginkona í heimi. Er komin með sleftauminn svona uppúr klukkan átta.. kannski hálfníu á góðum kvöldum.. og þyki mjög aðlaðandi þannig.
Held að kerfið sé ekki búið að átta sig á þessari breytingu, allavega eru augnlokin vön einhverju allt öðru!
Höfum því ákveðið að fá okkur au-pair til að aðstoða með ýmislegt.. svona eins langt og það nær.. þið skiljið..´;O)
Frekar erfitt að velja, en virðumst vera að detta inná amerísku línuna. Howdie..
Ef þið kannski vitið um einhverja sem langar að koma til Íslands ;O) þá megið þið hafa okkur í huga :O)
http://www.greataupair.com
Endilega kíkið þegar þið hafið EKKERT að gera og finnið einhverja huggulega handa okkur..

3. maí 2006
28. apríl 2006
It’s all so quiet.. shhh..shhh..
Þjóðarbókhlaðan.
Samansafn af “uss”-um og illum augnagotum og endurhvarf til 6 ára bekksins.
Mér finnst ég vera minnst í heiminum þegar konan með hornspangargleraugun gjóar augunum á mig yfir efri brún gleraugnanna. Ég skrifaði of hátt.
Færa stólinn vaaarleeega.. usss.. ekki missa bókina.. ekki fletta of hátt... rífðu blöðin varlega í sundur úr skrifblokkinni... usss...
Hvað myndi gerast ég tæki bara trylling hérna og brysti í söng eins og í lélegri Bollywood mynd?
Þori ekki að reyna, en ég myndi klappa fyrir þeim sem væru til í tuskið.

26. apríl 2006
much ado about..
Einmitt. Er á haus í próflestri og veit varla hvað ég heiti. Er búin að þræla mig í gegnum ca. 34 kafla og á eftir 7! Finn alveg að mig langar að gera eitthvað allt annað og er tiltekt í skápum jafnvel farin að hljóma spennandi. Það hefur reyndar alltaf verið akkelisarhæll minn í prófum. Að þurfa að gera eitthvað annað en að læra.
Aldrei var herbergið mitt hreinna en í stúdentsprófunum, aldrei var bíllinn jafn fínn og þegar próf stóðu yfir í Háskólanum og aldrei var eldhúsið á Framnesveginum jafn vel málað og einmitt þegar B.S. ritgerðasmíð stóð sem hæst.
Fór inn í þessa törn vitandi af þessum galla mínum og hef algjörlega reynt að halda mig frá slíkum "freistingum" þó svo að sjaldan hafi verið jafn mikil þörf á að ég sleppti mér.
Bíllinn minn er kominn á þunglyndislyf eftir að ég eignaðist hann og húsið er að bugast. Eini staðurinn sem er perfect er bílskúrinn. Mér að þakka? Nei. Pabba.
Ætla að halda þetta út og pína mig í gegnum þetta próftímabil.
Dóttirin á annars afmæli eftir nákvæmlega 7 daga. Hún telur niður samviskusamlega og tilkynnir okkur á hverjum morgni hvað margir dagar séu til 5 ára afmælisins. Hún veit að við erum búin að kaupa gjöfina og yfirheyrir pabba sinn daglega um hvað það getur verið. "eruð þið búin að pakka henni inn.." "Er ég heit eða köld.." " Er það Barbie, er það Bratz..." ...veit ekki hvaðan hún hefur þessa sjúklegu forvitni ;O)
Jæja.. 10mín. pásan búin.. back to the books...
meira síðar..

18. apríl 2006
Sumar eftir tvo..
Norðanvindurinn er hér með beðinn um að hundskast út í hafsauga og hleypa sunnanvindinum að. Þú hefur tvo daga til að koma þér í burtu góðurinn og getur svo mætt aftur í desember. EKKI FYRR!
11. apríl 2006
hmmm...
| You Are an Excellent Cook |
You're a top cook, but you weren't born that way. It's taken a lot of practice, a lot of experimenting, and a lot of learning. It's likely that you have what it takes to be a top chef, should you have the desire... |
7. apríl 2006
Hvað er klukkan?
..ójá.. eitt núll fyrir kvenþjóðina!
Hef síðan í júlí s.l. dílað og vílað við hina ýmsu iðnaðarmenn, eiginlega alla flóruna.. og oftar en ekki er verið að ákveða stund og stað.
"Kem við í fyrramálið".. "Kem kl. 13.00".."Kem á þriðjudaginn kl. 9.00"...
Árangurinn? Glataður. Enginn af þeim kunni á klukku, sumir virtust ekki einu sinni eiga dagatal. Þeir kunnu alveg djobbið, ekkert að lasta það, en tímasetningar.. bara grín.
Tími sem fór í að bíða eftir iðnaðarmönnum afþví að "..hann ætlaði að koma kl. 14.00" er ómældur. Hann var of mikil.
En í gær datt ég inn í Vogue til að panta gardínur og upplifði í fyrsta skipti góða þjónustu á þeim bæ. Ekki bara góða heldur frábæra. Í lokin var það ákveðið að þau kæmu heim og tækju mál og hún flippaði yfir "skeddjúlið" og sagði, .."já, hef smá tíma á morgun, kl. hálfellefu, verð vestur í bæ..". Ég hugsaði náttúrulega ..yeah right, glætan, hef heyrt þennan áður ljúfan.. En setti upp ljúfasta kellingabrosið og þakkaði henni mikið vel fyrir að ætla að koma svona fljótt.
Klukkan er núna 6 mínútur yfir 11. Hún er búin að koma. Hún bankaði eina mínútu í hálfellefu.
Hún kann á klukku. Ég hugsa að hún kunni líka á dagatal. Hún varaði mig við að venjulega væru þetta 3 vikur, en ég yrði að taka tillit til páskana. Auðvitað.
Sjáum til, let the countdown begin. Hef fulla trú á Vogue... og kvenfólki með klukku.

6. apríl 2006
Stundum veit ég ekki í hvora löppina ég á að stíga..
..það er bara allt of mikið að gera, segi ég sjálfri mér og dæsi reglulega yfir því hvað ég á bágt. Svo fréttir maður af ósköpum í kringum sig og veltir því fyrir sér hvað maður sé í raun að gera við tímann. Ég er ekki að skrifa bók sem breytir lífi þúsunda aðila, ég er ekki að finna upp lækningu við krabbameini og ég er ekki að auðga andann með neinu.. Er hætt að teikna, hef aldrei getað sungið og les varla bók í dag.. nema þá um skuldabréfaafleiður og annað álíka spennandi.
Vinir mínir eiga flestir í sama basli.. aldrei er tími til að setjast niður og anda. Bara anda og ekkert annað. Njóta samvista við vini sína og hlægja. Held að ég geri of lítið af því. Vegna þessara ótrúlegu anna, sem einhvernvegin eru svo ómerkilegir hlutir þegar litið er síðar til baka, gleymir maður að rækta samböndin og býst alltaf við því að allir séu til staðar þegar maður þarf á þeim að halda. Nýja apríl heitið mitt er því (hljómar svo miklu betra en áramótaheit) er því að rækta garðinn minn. Að öllu leiti.
Ætla að byrja hægt svo að þetta rústist ekki strax. Á það nefnilega til að henda mér í hlutina með látum og klára svo ekki af því að mér fallast hendur.
Veit ég er eitthvað voðalega væmin í dag.. en þetta er bara málið.
Sættu þig við það.

1. apríl 2006
Magnað félagslíf..
..eða hvað haldið þið:
"Skattframtali skilað 31.mars (föstudagskvöld) 2006 kl. 21:47"
Náði allavega fyrir mánaðarmót, var með frest til 27. en konan í skattinum sagð'ókei.. bara fyrir mánaðarmót ljúfan...
Nú hlær hún örugglega á morgun kellingin.. og segir "fyrsti aprílll fíbblið þitt..."
Sissó sagði mér allavega að hann hefði skilað tveimur mánuðum of seint í fyrra og samt á netinu! ..og ekki einu sinni komment frá skattstjóra!
Well.. ætla að færa þetta í hendur einhvers löggilts svindlara næsta ár.. endaði með að þurfa að borga helling sem er skandall! Hef ekki lent í því.. (reyndar á Kristján að borga en ekki ég.. he he.. sjáum hvort maður láni kallinum pening í ágúst..)
Til að halda upp á skilin er ég komin með Bailey's glas í hönd.. og horfi á "The Fan" á stöð 2.. aftur vek ég athygli á mögnuðu félagslífi...
Mér við hlið liggur eldri dóttirin sem sofnaði yfir idol... aftur þetta með félagslífið...
En úr því rætist kannski á morgun! Útibúið er að halda starfsdag og ég á að mæta. Svo ætlar liðið á skrallið um kvöldið.. og aldrei að vita nema að maður mæti líka þar! Kemur í ljós.. pössunarhliðin er ekki alveg frágengin enda hafa þessi blessuðu börn mín átt leiðinlegustu foreldra í heimi á síðustu vikum sem gera ekkert annað en að setja þau í pössun...
... er að spá í að skella mér í rúmið.. verst að Músíktilraunir voru að klárast og fagnaðarlætin enn í hámarki.
Veit ekki hver vann.. don't care... gleymdi samt að setja rafstraum á girðinguna hjá mér..

30. mars 2006
París.. c'est la vie..
Jæja.. pínu ferðasaga gott fólk..
Það leit nú ekki út fyrir að við færum þar sem að Kristján lagðist í rúmið á fimmtudaginn með ælupest og tilheyrandi huggulegheitum. Velti því fyrir mér þann daginn hvernig óhljóð geta myndast í líkamanum og var að spá í að skrá Kristján í einhvern búktalarahóp fyrir langt komna eftir þessa upplifun.
En svo kom föstudagurinn með tilheyrandi gleði. Tók mína huggulegu sobril og við lögðum af stað. Knúsuðum Heidda, sem var að koma frá Chicago, í komuhliðinu uppi og tókum nettan snúning í fríhöfninni. Tók eftir því að Eymundsson selur blöð og bækur á fullu verði eftir að þeir tóku við rekstri blaðasölunnar og eru sko ekkert að slá af vaskinn.. í duty free zone.. ónei.... sama verð og í 101
Flugið gekk fínt út, enda ákvað ég að blanda Baileys við sobrilinn (er farin að hljóma eins og sögupersóna í "Valley of the dolls") eins og Jóa mágkona benti mér á að gera .. virkar fínt! Var alveg kúl á því og leysti sudoku í fluginu af miklu kappi.
Lentum í París og fórum á hótelið sem var æði. 4 stjörnu hótel í miðju Óperuhverfinu.. alveg ljúft..
Sjoppuðum, löbbuðum og skoðuðum... og BORÐUÐUM!
Fórum á æðislegan stað á föstudagskvöldinu. Flora. Sú sem rekur hann tók þátt í Food and Fun síðast og er staðurinn með 2 Michelin stjörnur og ekki að ósekju. Pöntuðum "surprise" dinner og enduðum í sjö rétta (höfnuðum því að fá osta í næstsíðasta rétt, gátum ekki meir, annars hefðu það verið átta) snilldareldamennsku!! Mæli með þessum stað!
Næsta kvöld var Latínukvöldið tekið og indverskur staður prófaður.. mjög góður matur en Monsieur og Madam Sjabbí Subbó reka þennan stað. Þyrftu að prófa Ajax.
Síðasta kvöldið fórum við á æðislegan sushi stað, www.losushi.com nálægt Charles de Gaulle stöðinni.. Sátum á móti frönsku celeb liði sem við vissum ekkert hver voru.. en við vissum bara að þau voru subbu fræg, höfðum bæði séð þau áður, ..en hvar..?
Tókum hallærispakkann og smelltum mynd af þeim með símanum (leikþáttturinn "þykist vera að senda sms og tek mynd" var tekinn með trompi og enginn fattaði neitt). Spurningin er því:
Hver þekkir fólkið? Bene.. ég treysti á þig..!!
Tókum nettan túristapakka á sunnudeginum.. Allt nema Eiffelturninn og Louvre, fórum upp í Montmartre og skoðum mannlífið.. Svo var það dáldið merkilegt með margastaði, en þá virtist ég alltaf eiga einhverja hrakfallasögu af Hólmfríði? ..ljósakrónur og lögreglubílar? Anyone? ;O)
Fórum síðan heim á mánudag.. og fengum ekki sæti saman. Kristján reyndi að útskýra fyrir flugfreyjunni að ég væri frekar mikið flughrædd og hún horfði á okkur blíðum augum og sagði "Þið getið bara haldist í hendur yfir ganginn"... einmitt.. ótrúlega rómó móment sem við ætluðum að ná ná í viðbót með því að sitja saman í flugvél og nota flughræðslu sem afsökun.
Þegar tárin byrjuðu að renna án þess að ég réði við það þá fattaði hún að ekki var allt sem sýndist og Parísarþráin var ekki svona sterk hjá okkur. Gat ekkert gert við þessu, algjörlega óviðráðanleg viðbrögð! SKILETTEKKI!! Hélt síðan að flugvélin myndi hrapa nokkrum sinnum.. með tilheyrandi örvæntingu.. og var síðan ótrúlega glöð og hamingjusöm þegar vélin skransaði á Keflavíkurflugvelli.
Rámaði samt í fréttir af varnarliðinu og eitthvað um að þeir gætu líklega plöggað eitthvað úr sambandi undir skrifborði einhvers aðmírálsins og þá tækju þeir allt úr sambandi á vellinum.. Svona hugsanir ríkja í kollinum á flughræddu fólki.
Líka hugsanir eins og "líkurnar á því að farast með flugvélinni eru í öfugu hlutfalli miðað við fjölda frægs fólks í vélinni"... eða .."ótrúlega er þetta mikið jarðafararlag sem er verið að spila í útvarpinu hjá bílstjóranum sem keyrir okkur út á völl.. tilviljun.. held ekki".
Kleppur - Hraðferð, here I come.
Það leit nú ekki út fyrir að við færum þar sem að Kristján lagðist í rúmið á fimmtudaginn með ælupest og tilheyrandi huggulegheitum. Velti því fyrir mér þann daginn hvernig óhljóð geta myndast í líkamanum og var að spá í að skrá Kristján í einhvern búktalarahóp fyrir langt komna eftir þessa upplifun.
En svo kom föstudagurinn með tilheyrandi gleði. Tók mína huggulegu sobril og við lögðum af stað. Knúsuðum Heidda, sem var að koma frá Chicago, í komuhliðinu uppi og tókum nettan snúning í fríhöfninni. Tók eftir því að Eymundsson selur blöð og bækur á fullu verði eftir að þeir tóku við rekstri blaðasölunnar og eru sko ekkert að slá af vaskinn.. í duty free zone.. ónei.... sama verð og í 101
Flugið gekk fínt út, enda ákvað ég að blanda Baileys við sobrilinn (er farin að hljóma eins og sögupersóna í "Valley of the dolls") eins og Jóa mágkona benti mér á að gera .. virkar fínt! Var alveg kúl á því og leysti sudoku í fluginu af miklu kappi.
Lentum í París og fórum á hótelið sem var æði. 4 stjörnu hótel í miðju Óperuhverfinu.. alveg ljúft..
Sjoppuðum, löbbuðum og skoðuðum... og BORÐUÐUM!
Fórum á æðislegan stað á föstudagskvöldinu. Flora. Sú sem rekur hann tók þátt í Food and Fun síðast og er staðurinn með 2 Michelin stjörnur og ekki að ósekju. Pöntuðum "surprise" dinner og enduðum í sjö rétta (höfnuðum því að fá osta í næstsíðasta rétt, gátum ekki meir, annars hefðu það verið átta) snilldareldamennsku!! Mæli með þessum stað!
Næsta kvöld var Latínukvöldið tekið og indverskur staður prófaður.. mjög góður matur en Monsieur og Madam Sjabbí Subbó reka þennan stað. Þyrftu að prófa Ajax.
Síðasta kvöldið fórum við á æðislegan sushi stað, www.losushi.com nálægt Charles de Gaulle stöðinni.. Sátum á móti frönsku celeb liði sem við vissum ekkert hver voru.. en við vissum bara að þau voru subbu fræg, höfðum bæði séð þau áður, ..en hvar..?
Tókum hallærispakkann og smelltum mynd af þeim með símanum (leikþáttturinn "þykist vera að senda sms og tek mynd" var tekinn með trompi og enginn fattaði neitt). Spurningin er því:Hver þekkir fólkið? Bene.. ég treysti á þig..!!

Tókum nettan túristapakka á sunnudeginum.. Allt nema Eiffelturninn og Louvre, fórum upp í Montmartre og skoðum mannlífið.. Svo var það dáldið merkilegt með margastaði, en þá virtist ég alltaf eiga einhverja hrakfallasögu af Hólmfríði? ..ljósakrónur og lögreglubílar? Anyone? ;O)
Fórum síðan heim á mánudag.. og fengum ekki sæti saman. Kristján reyndi að útskýra fyrir flugfreyjunni að ég væri frekar mikið flughrædd og hún horfði á okkur blíðum augum og sagði "Þið getið bara haldist í hendur yfir ganginn"... einmitt.. ótrúlega rómó móment sem við ætluðum að ná ná í viðbót með því að sitja saman í flugvél og nota flughræðslu sem afsökun.
Þegar tárin byrjuðu að renna án þess að ég réði við það þá fattaði hún að ekki var allt sem sýndist og Parísarþráin var ekki svona sterk hjá okkur. Gat ekkert gert við þessu, algjörlega óviðráðanleg viðbrögð! SKILETTEKKI!! Hélt síðan að flugvélin myndi hrapa nokkrum sinnum.. með tilheyrandi örvæntingu.. og var síðan ótrúlega glöð og hamingjusöm þegar vélin skransaði á Keflavíkurflugvelli.
Rámaði samt í fréttir af varnarliðinu og eitthvað um að þeir gætu líklega plöggað eitthvað úr sambandi undir skrifborði einhvers aðmírálsins og þá tækju þeir allt úr sambandi á vellinum.. Svona hugsanir ríkja í kollinum á flughræddu fólki.
Líka hugsanir eins og "líkurnar á því að farast með flugvélinni eru í öfugu hlutfalli miðað við fjölda frægs fólks í vélinni"... eða .."ótrúlega er þetta mikið jarðafararlag sem er verið að spila í útvarpinu hjá bílstjóranum sem keyrir okkur út á völl.. tilviljun.. held ekki".
Kleppur - Hraðferð, here I come.
29. mars 2006
Kristján...
...er búinn að skrá mig á flughræðslunámskeið. Án þess að spyrja mig.
Þarf ég að segja fleiri orð um það hvernig ferðin gekk?

22. mars 2006
11 ár..
síðan ég kom heim frá París eftir 9 mánaða dvöl sem au-pair. Sex ár síðan við stelpurnar fórum út á 5 ára reunion. Hmm.. veit þetta náttúrlega upp á hár þar sem ég varð 23 ára í gær (líka hægt að lesa tölurnar afturábak og þá með leiðinlegri niðurstöðu..).
Það eru sumsé 2 dagar í það að ég fari aftur út, nú með kallinn með mér. Það liggur mikið undir þar sem hann heldur örugglega að ég hafi stúderað París og þekki hana eins og lófann á mér. Glætan! Við uppgötvuðum t.d. bara 3ja hverfið (sem er eiginlega það skemmtilegasta) þegar við fórum fyrir 6 árum! Einhvern veginn var þetta dvöl sem einkendist meira af "paris at night" og í lestum... Tók ekki alveg túristapakkann nema þegar einhver kom í heimsókn! (og þá varla..). Þarf líka að rifja upp frönskuna (hann heldur að ég sé fluent.. djók! )
Það eru sumsé 2 dagar í flugið... got it? Vona ótrúlega að Inga mamma hennar Auðar verði að vinna eða Gullý systir Lallý...Þarf eitthvað svona róandi andlit í crew-inu sem getur hjálpað mér! Vona að þetta gangi vel.. en þeir sem hafa setið mér í flugvél vona það örugglega líka, svona fyrir hönd hinna farþegana.
En sobril töflurnar fá sko samt að koma með, þeim finnst gaman að fljúga. Einu sinni ákváðu þær (á leiðinni frá Boston) að það væri skemmtilegast að vera þrjár saman. Í staðinn fyrir single..
Man ekki eftir flugferðinni. Man eftir að Erla skildi mig eftir í fríhöfninni og ég sagðist vera að koma. Man eftir fríhöfninni í slow mo.. man ekki meir. Skammaði svo Kristján fyrir að hafa ekki verið heima til að taka á móti mér. Sannleikurinn? Hann var heima.. leiddi mig inn, lagði mig í rúmið og kom svo heim í hádeginu aftur til að tékka á mér. Held það verði ekkert sobril tríó í þessari ferð. Kannski duo, enda virkar þetta ekki solo... mio...
Eða kannski verð ég bara full.. nenni því samt ekki.
Munið bara þegar þið lesið moggann og sjáið "Flugdólgar eru ekki bara karlkyns.." þá er væntanlega verið að tala um mig.. og þá voru sobril töflurnar búnar.

20. mars 2006
19. mars 2006
Músíktilraunir..
..hefjast á morgun. Hef svo sem aldrei skipt mér af þeim.. veit varla hver vinnur eða vann það og það árið. Í ár verður þó breyting á.
Mér til ómældrar gleði og yndisauka hafa aðstandendur músíktilrauna ákveðið að halda keppnina í...
já.. þið giskuðuð rétt....
LOFTKASTALANUM.. jibbý!!!!
Á hverju einasta kvöldi í næstu viku mun gleðin dynja hér fyrir utan. Aðdáendur bílskúrsbandanna munu að sjálfsögðu mæta til að hvetja sitt lið og kannski míga á grindverkið mitt í leiðinni? Hver veit?
Get ekki lýst gleðinni í hjarta mínu yfir þessari ákvörðun.
...lengi lifi rokkið....

15. mars 2006
..það les þetta hvort eð er enginn..
..eða svo segir Leibbi frændi. "Það kommentar enginn hjá þér og það eru örugg merki um engan lestur!"..
Neita að trúa því, tel mér bara trú um að mínir lesendur séu bara svona hógværir..
Finnst þetta samt ágætis miðlun. Mín sterkasta hlið er nefnilega ekki sú að vera "tengillinn" í vinahópum. Ég fæ bara svona að vera með.. Hólmfríður er hetjan mín, alltaf að plana eitthvað og ótrúlega dugleg við halda halda hin ýmsustu boð, sem ég mæti þó ekki alltaf í, en reyni að komast þegar ég get! Hún er svon "lím". Ekki það að ég ætli að breytast í einhverja innirottu sem að tjái mig aðeins í gegnum miðla sem útiloki alvöru tengsl.. nei nei.. ekki aldeilis...
Flughræðsla - Part II.
Var að horfa á nfs og þar var Sigurður stormur að tala um hvað væri ægilega öruggt að fljúga þrátt fyrir vond veður... ...bara smá láréttir og lóðréttir og skáréttir vindar sem blása og hvása.. eruð þið farin að fatta plottið? Veit ekki hvort að þetta er samsæri gegn mér, en ég sé bara fréttir af flugvélum núna og virðist heyra og sjá allt sem álpast í fjölmiðla um þennan flokk. Tilviljun..? Held ekki.
Kannski meira á eftir.. skiptir náttúrulega ekki máli þar sem enginn les þetta ;O)

13. mars 2006
Það er árið 2006...
...en eitthvað hafa þeir ruglast á dagatölum hjá Íslensk-Ameríska..
Krisján fór í Bónus allra landsmanna í gær og verslaði inn... svo sem ekkert tilitökumál, en í þessari ferð voru einnig keyptar bleyjur á prinsessuna. Með þeim fylgdi síðan bæklingur sem bar heitið:
"Töfrar svefnsins"
Fyrir mæður með börn á aldrinum 0-6 mánaða.
Mæður?? hvað með feður? hvaða rugl er þetta á þessari öld? ..og ef þeir ætla að fara að skýla sér bakvið eitthvað bla bla um að konan sé heima í 6 mánuði og karlinn svo skal þeim bent á að í lögunum um fæðingarorlof (95/2000) stendur:
8. gr. Réttur foreldra á vinnumarkaði. Foreldrar, sbr. 1. mgr. 1. gr., eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. Þessi réttur er ekki framseljanlegur. Auk þessa eiga foreldrar sameiginlegan rétt á þremur mánuðum til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt með sér. …1)
akkúrat!
Í einu orði: Hallærislegt! held þeir ættu að endurprenta þennan bækling..
úff.. eins gott að Rebekka á ekki eftir nema mánuði í 6 mánuðina.. þá getur hún farið að kynnast pabba sínum...
hrumpfh...
ætli þeir séu ekki bara með dagatalið hans Norman Rockwell uppi við frá 1956 sem sýnir hina "fullkomnu fjölskyldu" ..

10. mars 2006
Ég sé...
..Esjuna
og ýmislegt annað eftir að blái viðbjóðurinn kvaddi þetta líf í gærkvöldi. Við urðum alltíeinu vör við blikkandi ljós þar sem að lögreglan var búin að loka Mýrargötunni.. væntanlega vegna þess að ef allt hefði farið á versta veg hefði framhliðin fallið framfyrirsig.. sem hún gerði nú reyndar ekki... en hún féll þó!
Ákvað að skella inn nokkrum myndum, til að sýna muninn.. en nú þarf maður að venjast nýju útsýni! Þeir eiga nú eftir að hreinsa betur upp en þetta er allt að koma hjá þeim. Þetta hús hefur haft ótrúlega vonda nærveru þann tíma sem við höfum búið hér vestur
frá. Tvisvar hefur hefur verið kveikt í því .. og þrátt fyrir að okkur finnist plús að hafa smá "happening" í kvöldverðarboðum hjá okkur, þá var þetta ekki alveg málið! Útigangsmenn hafa búið þarna og krakkarnir í hverfinu hafa sum hver teflt á tæpasta vað með því að "rannsaka" húsið í því ömurlega ástandi sem það hefur verið.
Nú er sumsé Martröðinni á Blá-stræti að ljúka. Vertu bless ljóta hús.. vertu bless. Þín verður ekki saknað.
Svo er líka svo gaman að sjá hvað var bakvið hryllinginn... hmm.. þarna sjáum við Esjuna, sjáum inn á Fiskislóðina og svo annan gaflinn á einhverju húsi sem ég þarf að komast að því hvað er..
Hlakka til að sjá hvað verður sett í staðinn, ég veit ég missi útsýnið aftur, en gæti mögulega fengið eitthvað huggulegt í staðinn. Ég set bara fram eina kröfu.. og ég meina það! Þegar verður farið að byggja upp nýja húsið sem kemur þá krefst ég þess að þeir sem ráði þar ríkjum velji iðnaðarmenn eftir útliti. Ég vil huggulega
iðnaðarmenn sem að myndu sóma sér vel á hvaða centerfolderi sem er .. Engar rassaskorur takk! Ég verð með besta útsýni bæjarins yfir framkvæmdirnar og ég vil eitthvað til að horfa á...
Þegar maður hefur neyddur til að éta hafragraut í öll mál er lágmark að maður fái nokkra konfekt mola á eftir.. erþaggi? Centerfoldera og huggulega sveina!
Lágmarkskrafa.
og ýmislegt annað eftir að blái viðbjóðurinn kvaddi þetta líf í gærkvöldi. Við urðum alltíeinu vör við blikkandi ljós þar sem að lögreglan var búin að loka Mýrargötunni.. væntanlega vegna þess að ef allt hefði farið á versta veg hefði framhliðin fallið framfyrirsig.. sem hún gerði nú reyndar ekki... en hún féll þó!Ákvað að skella inn nokkrum myndum, til að sýna muninn.. en nú þarf maður að venjast nýju útsýni! Þeir eiga nú eftir að hreinsa betur upp en þetta er allt að koma hjá þeim. Þetta hús hefur haft ótrúlega vonda nærveru þann tíma sem við höfum búið hér vestur
frá. Tvisvar hefur hefur verið kveikt í því .. og þrátt fyrir að okkur finnist plús að hafa smá "happening" í kvöldverðarboðum hjá okkur, þá var þetta ekki alveg málið! Útigangsmenn hafa búið þarna og krakkarnir í hverfinu hafa sum hver teflt á tæpasta vað með því að "rannsaka" húsið í því ömurlega ástandi sem það hefur verið.Nú er sumsé Martröðinni á Blá-stræti að ljúka. Vertu bless ljóta hús.. vertu bless. Þín verður ekki saknað.
Svo er líka svo gaman að sjá hvað var bakvið hryllinginn... hmm.. þarna sjáum við Esjuna, sjáum inn á Fiskislóðina og svo annan gaflinn á einhverju húsi sem ég þarf að komast að því hvað er..Hlakka til að sjá hvað verður sett í staðinn, ég veit ég missi útsýnið aftur, en gæti mögulega fengið eitthvað huggulegt í staðinn. Ég set bara fram eina kröfu.. og ég meina það! Þegar verður farið að byggja upp nýja húsið sem kemur þá krefst ég þess að þeir sem ráði þar ríkjum velji iðnaðarmenn eftir útliti. Ég vil huggulega
iðnaðarmenn sem að myndu sóma sér vel á hvaða centerfolderi sem er .. Engar rassaskorur takk! Ég verð með besta útsýni bæjarins yfir framkvæmdirnar og ég vil eitthvað til að horfa á...Þegar maður hefur neyddur til að éta hafragraut í öll mál er lágmark að maður fái nokkra konfekt mola á eftir.. erþaggi? Centerfoldera og huggulega sveina!
Lágmarkskrafa.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)